Back to All Events

Safna, raða, geyma / Gathered, Enshrined | Íris Erlings & Jóhanna Ásgeirsdóttir


Íris Erlings & Jóhanna Ásgeirsdóttir

Safna, raða, geyma

Gathered, Enshrined

27.8.–2.9.2026

Safna, raða, geyma
Opnun 27. Ágúst 2026, 17:00-20:00
Opnunartímar 28. ágúst - 2. September, 16:00-18:00 virka daga, 14:00-16:00 um helgina

hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagöta 17, inngangur A, önnur hæð

sýning

Á sýningunni Safna, raða, geyma notum við söfnun sem hugleiðsluform. Við bjuggum til undraherbergi og leyfðum okkur að tína, raða, fegra og upphefja. Innsæið var dularfullur áttaviti sem stýrði för okkar. Við höldum að við höfum einhverja stjórn á því sem við veljum, að þú tínir blómið, en hvað ef blómið tíndi þig?

listafólk

Íris Erlings er listakona og ljósmyndari starfandi í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í ljósmyndun frá London College of Communication og bjó stærstan hluta ævi sinnar í Bretlandi en snéri aftur til Íslands 2019. Íris starfar þvert á miðla en leggur áherslu á teikningu í verkum sínum og sækir innblástur í náttúruna og hönnun. Hún leitast eftir því að kannar leiðir til að tjá form, áferð og efni á tvívíðum fleti. Hún hefur gefið út tvær bækur með teikningum og sýnt verk sín á fjölmörgum bókasýningum um allan heim. Hún er meðlimur í Hafnar.Space teyminu.

www.instagram.com/iris_erlings

Jóhanna Ásgeirsdóttir eða Jóa er myndlistarmaður og kennari starfandi í Reykjavík. Hún hlaut BFA í myndlist frá New York University og lauk MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Í list sinni og kennslu skoðar hún sniðmengi myndlistar og vísinda. Hún vinnur með ólíka miðla en mest með steint gler. Hún hefur kennt námskeið um samband lista, vísinda og stærðfræði í Myndlistaskólanum í Reykjavík og við Listaháskóla Íslands. Jóa heldur einnig smiðjur um list og vísindi fyrir alla aldurshópa í menningarhúsum og listasöfnum. Hún hefur stundað rannsóknir á störfum Einars Þorsteins Ásgeirssonar á Hönnunarsafni Íslands og unnið að fræðsluefni um hann í samstarfi við safnið. Hún starfaði sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra og er einn stofnandi Hafnar.space.

www.joa.is

//

Gathered, Enshrined

Opening 27.08, 17:00-18:00
Regular hours: 28.08 - 02.09, 16:00-18:00 weekends, 14:00-16:00 weekend

hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagata 17, A-side entrance, second floor

show

In Gathered, Enshrined we use the act of collecting as a form of meditation. Assembling a cabinet of curiosities, we gave in to the impulse to collect, arrange, beautify and enshrine. We let our intuition dictate combinations, that mysterious internal compass that steers us. We think we have some control over our choices, that you pick the flower, but what if the flower picked you? 

artists

Íris Erlings is an artist and photographer based in Reykjavík. She graduated with a BA in Photography from the London College of Communication and having lived most of her life in the UK, returned to Iceland in 2019. With an emphasis on drawing, she is a multimedia artist whose work takes inspiration from nature and design, exploring ways in which form, texture and material can be represented on 2 dimensional surfaces. She has published 2 books of drawings and has exhibited at numerous book shows around the world. She is a member of the Hafnar.Space team.

Jóhanna Ásgeirsdóttir or Jóa is a visual artist and educator based in Reykjavík. She received a BFA in Fine Arts from New York University and an MA in Art Education from the Iceland University of the Arts. In her art and pedagogical practice, she explores the intersection of art and science. She works with a variety of media, but most often with stained glass. She has taught courses on the relationship between art, science and mathematics at the Reykjavík School of Visual Arts and at Iceland University of the Arts. Jóa regularly holds workshops on art and science for all ages in cultural centers and art museums. She has conducted research on the work of Einar Þorsteinn Ásgeirsson at the Icelandic Design Museum and worked on educational materials about him in collaboration with the museum. She served as the artistic director of the art festival Art Without Borders and is one of the founders of Hafnar.space.

Previous
Previous
June 17

Ég bjó til heila sýningu / Art on the Brain │Ingiríður Halldórsdóttir / Lyfvera

Next
Next
September 17

The Life and Death of Images | Odysseas Cloridis