Safna, raða, geyma / Gathered, Enshrined | Íris Erlings & Jóhanna Ásgeirsdóttir
Íris Erlings & Jóhanna Ásgeirsdóttir
Safna, raða, geyma
Gathered, Enshrined
27.8.–2.9.2026
Safna, raða, geyma
Opnun 27. Ágúst 2026, 17:00-20:00
Opnunartímar 28. ágúst - 2. September, 16:00-18:00 virka daga, 14:00-16:00 um helgina
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagöta 17, inngangur A, önnur hæð
sýning
Á sýningunni Safna, raða, geyma notum við söfnun sem hugleiðsluform. Við bjuggum til undraherbergi og leyfðum okkur að tína, raða, fegra og upphefja. Innsæið var dularfullur áttaviti sem stýrði för okkar. Við höldum að við höfum einhverja stjórn á því sem við veljum, að þú tínir blómið, en hvað ef blómið tíndi þig?
listafólk
Íris Erlings er listakona og ljósmyndari starfandi í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í ljósmyndun frá London College of Communication og bjó stærstan hluta ævi sinnar í Bretlandi en snéri aftur til Íslands 2019. Íris starfar þvert á miðla en leggur áherslu á teikningu í verkum sínum og sækir innblástur í náttúruna og hönnun. Hún leitast eftir því að kannar leiðir til að tjá form, áferð og efni á tvívíðum fleti. Hún hefur gefið út tvær bækur með teikningum og sýnt verk sín á fjölmörgum bókasýningum um allan heim. Hún er meðlimur í Hafnar.Space teyminu.
www.instagram.com/iris_erlings
Jóhanna Ásgeirsdóttir eða Jóa er myndlistarmaður og kennari starfandi í Reykjavík. Hún hlaut BFA í myndlist frá New York University og lauk MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Í list sinni og kennslu skoðar hún sniðmengi myndlistar og vísinda. Hún vinnur með ólíka miðla en mest með steint gler. Hún hefur kennt námskeið um samband lista, vísinda og stærðfræði í Myndlistaskólanum í Reykjavík og við Listaháskóla Íslands. Jóa heldur einnig smiðjur um list og vísindi fyrir alla aldurshópa í menningarhúsum og listasöfnum. Hún hefur stundað rannsóknir á störfum Einars Þorsteins Ásgeirssonar á Hönnunarsafni Íslands og unnið að fræðsluefni um hann í samstarfi við safnið. Hún starfaði sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra og er einn stofnandi Hafnar.space.
//
Gathered, Enshrined
Opening 27.08, 17:00-18:00
Regular hours: 28.08 - 02.09, 16:00-18:00 weekends, 14:00-16:00 weekend
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagata 17, A-side entrance, second floor
show
In Gathered, Enshrined we use the act of collecting as a form of meditation. Assembling a cabinet of curiosities, we gave in to the impulse to collect, arrange, beautify and enshrine. We let our intuition dictate combinations, that mysterious internal compass that steers us. We think we have some control over our choices, that you pick the flower, but what if the flower picked you?
artists
Íris Erlings is an artist and photographer based in Reykjavík. She graduated with a BA in Photography from the London College of Communication and having lived most of her life in the UK, returned to Iceland in 2019. With an emphasis on drawing, she is a multimedia artist whose work takes inspiration from nature and design, exploring ways in which form, texture and material can be represented on 2 dimensional surfaces. She has published 2 books of drawings and has exhibited at numerous book shows around the world. She is a member of the Hafnar.Space team.
Jóhanna Ásgeirsdóttir or Jóa is a visual artist and educator based in Reykjavík. She received a BFA in Fine Arts from New York University and an MA in Art Education from the Iceland University of the Arts. In her art and pedagogical practice, she explores the intersection of art and science. She works with a variety of media, but most often with stained glass. She has taught courses on the relationship between art, science and mathematics at the Reykjavík School of Visual Arts and at Iceland University of the Arts. Jóa regularly holds workshops on art and science for all ages in cultural centers and art museums. She has conducted research on the work of Einar Þorsteinn Ásgeirsson at the Icelandic Design Museum and worked on educational materials about him in collaboration with the museum. She served as the artistic director of the art festival Art Without Borders and is one of the founders of Hafnar.space.
Ég bjó til heila sýningu / Art on the Brain │Ingiríður Halldórsdóttir / Lyfvera
◼️ Ég bjó til heila sýningu
◾️OPNUN: Miðvikudag, 17. júní kl 14:00-17:00
▪️OPNUNARTÍMAR: 17.-23. júní 2026, nánar á samfélagsmiðlum
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagöta 17, inngangur A, önnur hæð
▪️sýning
Hugurinn ber þig hálfa leið heim, en er einhver heima? Hafðu opinn huga og stingdu höfðinu inn. Ég bjó til heila sýningu er gerð úr bókstaflegum skúlptúrum sem skoða og ýkja (ó)eðlilegt heimilislíf listamannsins.
Lyf og læknisfræðilegur myndheimur verður daglegt brauð. Líf, dauði og aðrar aukaverkanir standa svart á hvítu, í smáaletrinu. Poppaðu pastellitaðar pillur, til að heimilislífið gangi smurt.
Hengdu upp heilaþvottinn og fáðu þér smurða Brauðsneiðmynd, en ekki of mikið því þá gæti það farið þér til höfuðs.
▪️listamaður
Ingiríður Halldórsdóttir (1996) er langveik listakona og samfélags skipuleggjari.
Undir listamannsnafninu Lyfvera skapar hún verk sem skoða þann heim sem veikindi hennar hafa skrifað upp á. Í gegnum skúlptura og ljóð opnar hún hurð inn í hversdagsleika sinn.
Með húmor, orðagríni og öðrum útúrsnúningum skorar hún á áhorfandann að sjá lyf og langveikindi í stærra og stundum gamansömu samhengi.
Ljóð, leikur að orðum, skriffinnska og leikgleði. Skáldamál, spaugsyrði, skriffinnska og skemmtilegheit. Snefillmagn af salti á sáraukan sem simrar undir.
Ingiríður gefur hversdagsleikanum gaum, ummótar og umbreytir honum í eitthvað nýtt. Hún hefur verið hluti af Hafnar.haus samfélaginu frá 2023. Þar hefur hún tekið þátt í að skipuleggja ýmsa listræna viðburð, ásamt því að sjá um prentsmiðju í Hafnar.haus sem rekin er af samfélaginu þar.
Fyrri einkasýningar Lyfveru hafa verið í Gluggagalleríi Hafnarhaus, Það er gluggaverkur í dag (2025) og Hamraborg Festival (2025). Lyfvera var hluti af samsýningunni Hjartslættir á List án landamæra (2024). Ég bjó til heila sýningu verður fyrsta stóra innsetningarverk Lyfveru.
@lyfvera
//
◼️ Art on the Brain
◾️OPENING: Wednesday, june 17th, 2-5 PM
▪️HOURS: 17-23 June 2026, hours on socials
hafnar space, hafnar.haus, Tryggvagata 17, A-side entrance, second floor
▪️show
Home is where your heart is, but who lives inside this brain? Take a look inside and try to keep an open mind.
Art on the brain is made of literal sculptures, examining and exaggerating the (un)normalness of the artist's home life. Medications and medical imagery become part of the background of daily life.
Life, death and other side effects in black and white small text. Pill pops of colors, to make the haushold run smoothly.
After hanging up the brain washing you can grab a piece of my mind, but not too much because you don’t want to brain fart
▪️artist
Ingiríður Halldórsdóttir (1996) is a chronically ill artist and community organiser.
Ingiríður creates under the artist name Lyfvera (Drug'being) as she explores the world that illnesses have prescribed her.
Through sculptural works and poetry she opens a door into her existence. With humor and wordplay she dares the audience to see medication in a bigger context.
Poetry, puns, paper work and playfulness. Peppered in with a pinch of pain. Ingiríður enjoys exploring everydayness, molding and transforming it into newness.
Since 2023 Ingiríður has been part of Hafnar.Haus, where she has a studio space. There she has taken part in organising a broad spectrum of art events, as well as running the Hafnar.haus printshop.
Lyfvera's previous solo shows have been at Hafnar.haus Window Gallery, Það er gluggaverkur í dag (2025) and Hamraborg Festival (2025). Lyfvera was a part of a group exhibition Heartbeats at Art without borders (2024). Art on the Brain will be Lyfvera’s first large scale installation art piece.
@lyfvera
Lyfvera.is
Isadora Alves & Christoph Matt in dialogue with Céline Mandon
Isadora Alves & Christoph Matt
in dialogue with Céline Mandon
Archives of the Earth
26.3.–02.4.2026
Opening 6–9 PM
داوود, Marta Domachowska & Doro Sora
داوود, Marta Domachowska & Doro Sora
Ex.Sapiens
07–08.02.2026
Opening 7–10 PM
Sarah Finkle
Sarah Finkle
Slowly Collected, Compressed, Repeat
15–19.01.2026
Opening 5–8 PM
Lucrezia Costa
Lucrezia Costa
Somewhere to belong
18–20.10.2025
Opening, Thursday, 16.10.2025, 5–8 PM
Sóldís
Sóldís
The Solo Show
10–07.06.2025
Opening, Thursday, 10.06.2025, 5–8 PM
Regular opening hours, Saturday, 12.06.2025, Sunday, 13.06.2025, 1–4 PM
Hafnar.haus, Tryggvagata 17, entrance a, second floor
Exhibition
The Solo Show exhibition is a collaboration between hafnar.haus and Opna LHÍ, Iceland Academy of the Arts
Artist
The first exhibition is a solo exhibition by Sóldís. Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, a visual artist, poet and designer, exhibits bew works in print media. She has previously shown her work at Gallerí Úthverfa and with Art Without Borders art festival.
Information
Facebook Event

